Að halda nýjum götum hreinum og lausum við bakteríur og sýkla er mjög mikilvægt á gróunartímanum. Easy Piercing er akkurat það sem að þig vantar.
Spreyið er laust við sjávarsalt, en í sjávarsalti getur verið að finna ýmis óprófuð steinefni, málma og jafnvel þungamálma sem gætu haft neikvæð áhrif á opin sár. Sem er akkurat ástæða þess að sjúkrahús, læknar og bráðamóttökur nota aðeins natríumklóríð af sama styrk og er að finna í spreyinu, til hreinsunar sára.
Notkun: Best er að spreyja á eyrnapinna eða grisju og þrífa létt í kringum gatið. Endurtakið 2-3 á dag eða eftir þörfum. Mikil notkun beint á húð getur þurrkað til lengri tíma svo varist að spreyja beint á húð.